Áreiðanleg sýnataka og fagleg ráðgjöf sem styður við góða ákvarðanatöku í umhverfismálum.
Hafa samband ÞjónustanMarvakt sinnir umhverfisvöktun og sýnatöku í sjó, ferskvatni og á landi, auk ráðgjafar um umhverfismál. Sérsvið okkar er hafið.
Regluleg vöktun á ástandi sjávar, t.d. við fiskeldi, hafnir, fráveitur og framkvæmdir við strönd.
Taka og úrvinnsla botnsýna til greininga á seti, lífríki og mengun á sjávarbotni.
Sjósýnataka með iðnaðardróna og sérhæfðum sýnataka. Fljótlegt og hagkvæmt, og ekki þarf að leigja bát.
Vöktun og sýnataka í ám, vötnum og grunnvatni, t.d. vegna vatnsverndar og framkvæmda.
Umhverfisvöktun á landi, t.d. jarðvegur, gróður og áhrif framkvæmda á nærumhverfi.
Ráðgjöf um umhverfismál, umhverfismat framkvæmda, vöktunaráætlanir og skýrslugerð.
Við tökum sjósýni með iðnaðardróna (DJI Matrice 400) og sérstökum sjósýnataka. Þannig náum við sýnum á réttum stað og dýpi án þess að leigja bát og áhöfn.
Við veljum aðferðina eftir aðstæðum hverju sinni, úr lofti, af yfirborði eða frá landi.

Marvakt er sérhæft fyrirtæki í umhverfisvöktun og ráðgjöf, með sérstaka áherslu á hafið. Framkvæmdastjóri er Eva Dögg Jóhannesdóttir sjávarlíffræðingur. Hjá okkur talar þú beint við þá sem vinna verkið, frá skipulagningu og sýnatöku til skýrslu.
Við vinnum fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem þurfa áreiðanleg gögn um umhverfið.
Hafðu samband og við förum yfir hvernig við getum aðstoðað, hvort sem um er að ræða staka sýnatöku eða langtímavöktun.
Eva Dögg Jóhannesdóttir
Sjávarlíffræðingur